Hópar
Yfir vetrarmánuðina, frá október til apríl, er hægt að fá húsið leigt fyrir hópa og hefur aðstaðan reynst henta einstaklega vel fyrir fjölbreytta starfsemi.

Hér hafa dvalið í lengri eða skemmri tíma jóga-, gönguskíða-, íþrótta- og leikhópar en einnig björgunarsveitir, kórar og hljómsveitir við æfingar. Hér hafa líka verið haldnir fundir, námskeið og ráðstefnur, ættarmót, böll, tónleikar og listasýningar, auk þess sem kvikmyndagerðarfólk, bæði innlent og erlent hefur dvalið hér við leik og störf.
Leit