Veitingastaður
Við bjóðum upp á bragðgóðan mat úr héraðinu í bland við framandi rétti. Morgunverður er frá kl. 08:00 til kl. 10:00. Kvöldverður er frá kl. 19:00 til 21:00, fersk og fjölbreytt hlaðborð. Við leggjum sérstaka áherslu á nýtt sjávarfang og heimagerðan hollan mat, nýbökuð brauð, næringarríkar súpur, græn salöt og kryddjurtir úr garðinum að ógleymdum girnilegum eftirréttum. Eftir 1. september er kvöldverður frá kl. 19:00 til 20:00.
Maturinn er framreiddur í björtum og notalegum borðsal með útsýni yfir fjörðinn og vínveitingar eru á staðnum.
Morgunverður frá kl. 8 til kl. 10
Morgunverðarhlaðborð 2100 kr.
Frítt fyrir börn 0 - 5 ára.
Helmings afsláttur fyrir börn 6 - 12 ára.
Kvöldverður frá kl. 19 til kl. 21
Hlaðborð: 3900 kr. - 5900 kr.
Súpa og salat af hlaðborði: 2990 kr.
Frítt fyrir börn 0 - 5 ára.
Helmings afsláttur fyrir börn 6 - 12 ára.
Drykkir
Kaffi/te: 400 kr.
Heitt súkkulaði: 500 kr.
Gosdrykkir: 400 kr.
Bjór: 800/1000 kr.
Rauðvínsflaska: 4900/7900 kr.
Hvítvínsflaska: 4900/7900 kr.
Litlar vínflöskur, rautt eða hvítt: 1200 kr.